Húsið er einstaklega vandað og vel staðsett við sjávarsíðuna á vestanverðu Kársnesi. Í námunda verður fyrirhuguð Fossvogsbrú sem mun með Borgarlínunni skapa sterka tengingu við Öskjuhlíð, háskólasvæðin, Reykjavíkurflugvöll og miðborg Reykjavíkur.
Á milli hússins og strandarinnar er grænt svæði sem gefur óskert og stórkostlegt útsýni til sjávar. Á strandlengjunni er göngu- og hjólstígur sem tengist stíganeti höfuðborgarsvæðisins.
Í alla hönnun var lögð mikil alúð og áhersla lögð á gott flæði á milli rýma og nýtni allra fermetra. Ending og gæði eru höfð að leiðarljósi við allt efnisval og frágang hússins. Íbúðirnar hafa aukna lofthæð og stórir gluggar gera þær bjartar og ramma inn einstakt útsýnið. Hluti íbúðanna er með svalarlokanir.
Á sérafnotareitum og völdum svölum er möguleiki á að koma fyrir rafmagnspotti. Aðgangsstýrð bílageymsla er í kjallara og flestum íbúðum fylgir sérmerkt einkastæði, ýmist eitt eða tvö.
Upplýsingar
Íbúðir
52
Byggingarár
Í byggingu

Helgi Steinar Helgason arkitekt segir frá hönnuninni á húsinu að Hafnarbraut 18.
Staðsetningin er við sjávarsíðuna á Kársnesinu og fyrir framan húsið er náttúran óhindruð alveg að sjó. Þá er húsið staðsett nærri samgönguæðinni, Borgarlínu, sem mun koma yfir Fossvoginn.
Lögð var áhersla á að íbúðirnar væru bjartar og í húsinu væru fjölbreyttar íbúðagerðir. Þá er hver íbúð búin sjálfstæðu loftræstikerfi sem tryggir lofptskipti og skilar betra lofti og gæðum til íbúanna.
Kársnesið hefur verið í mikilli uppbyggingu og mun jafnframt taka áframhaldandi breytingum. Einstakt hverfi þar umvafið sjó og þar sem væntanlegt að komi ein helsta samgöngubót höfuðborgarsvæðisins, Borgarlínan, verður rétt hjá.
Stutt er í matvöruverslanir og alla helstu þjónustu. Kársnesið er með fjölda göngu- og hjólastíga sem tengist hvort sem er til Reykjavíkur eða inn í Kópavoginn. Einstök staðsetning fyrir þá sem elska að horfa út á hafið og njóta þess að vera með bát í höfn.
























